Umsagnir

Við hjá ReMake Electric erum mjög ánægðir með útkomu heimsíðunnar okkar og ekki síður samskiptin við starfsmenn Miðnets.

Þjónustan er fyrsta flokks og eru starfsmenn boðnir og búnir að aðstoða hvenær sem á þarf að halda. Ekki skemmir fyrir að starfsmenn Miðnets er einstaklega skemmtilegir og hugmyndaríkir og alltaf gaman að eiga samskipti við þá.

Við mælum hiklaust með Miðneti fyrir alla þá sem eru að leita sér að heimasíðum og þarfnast góðrar aðstoðar við rekstur hennar sem og tölvubúnaðar.

Freyr Hólm Ketilsson

Freyr Hólm Ketilsson

Markaðsstjóri ReMake Electric

Vefur: www.remake-electric.com

Það reyndist mikill og góður ávinningur að hafa leitað liðsinnis Miðnets ehf. við hönnun og gerð heimasíðu Úttektar og úrlausnar. Mér er sönn ánægja að votta að öll fagleg vinna, útfærsla, hönnun, ráðgjöf, samráð og samskipti við Trond Eiksund, vefhönnuð, var eins og best verður á kosið.


Ég er mjög ánægður með afraksturinn. Kostnaðurinn við gerð síðunnar var auk þess á mjög sanngjörnu verði. Ég get heilshugar mælt með þjónustu Miðnets ehf.

Marteinn Steinar Jónsson

Marteinn Steinar Jónsson

Sérfræðingur í klínískri sálfræði. Fyrirtækja- og vinnusálfræðingur.

Vefur: www.uttekturlausn.is

Við höfum keypt þjónustu af Miðneti undanfarin fimm ár. Í byrjun vorum við með mjög frumstæðan og úreltan vélbúnað sem krafðist stöðugra neyðarreddinga. Við höfum nú endurnýjað allan vélbúnað og nutum við kaup á nýjum vélum góðrar aðstoðar og ráða frá Miðnet. Þjónusta umsogn-hexa-logofyrirtækisins hefur í alla staði verið til fyrirmyndar og ávallt hægt að reiða sig á hana, sem er gríðarlega mikilvægt í þetta stórum rekstri sem Hexa er með, ásamt dótturfélögum.
Ég get með góðri samvisku mælt með þjónustu fyrirtækisins.

Guðmundur Sigþórsson
Framkvæmdastjóri
www.hexa.iswww.hexa.is

Guðmundur Sigþórsson

Guðmundur Sigþórsson

Framkvæmdastjóri

Vefur: www.hexa.is

Hann er reyndar ekki frá Kasmír, snillingurinn sem heldur utan um tæknihliðina á vefsetri sannleikans, atlisteinn.is. Öllu heldur er hann frá Egilsstöðum og gengur undir nafninu Ríkharður Brynjólfsson. Rikka kynntist ég þegar við störfuðum saman hjá tollstjóranum í Reykjavík, hann sinnti þar netumsjón af alkunnu listfengi sínu en síðar hóf hann sólóferilinn eins og margir góðir listamenn og stofnaði Miðnet, rafræna herdeild sem sér ekki vandamálin fyrir lausnunum.

Ég dreg enga fjöður yfir það að Rikki á heiðurinn af hönnun og öllum glæsileika atlisteinn.is. Hann réðst í verkefnið eins og honum einum er lagið og fór þetta á æðruleysinu eins og KK. Brjálæðislegum tillögum mínum var hafnað kurteislega og af þessari umsogn-atlifurðulegu blöndu af hógværð og lítillæti sem Rikki hefur tileinkað sér með löngu samneyti sínu við fólk sem skilur ekki tölvur og mun aldrei skilja þær. Fólki eins og mér.

Eftir rafrænar fæðingarhríðir pírði frumburðurinn sannleiksþyrst augu sín framan í veröld nýja og góða 1. febrúar 2009, daginn sem tjáningarþörfin sigraði þögnina endanlega. Ég fer ekki í neinar grafgötur með það að atlisteinn.is er í góðum höndum og hæfum. Rikki ruddi hindrununum úr vegi einni af annarri og fyrr en varði réð ég yfir eigin vefsetri og það sem meira er, fullkomlega skiljanlegu og aulaheldu umsjónarkerfi á bak við það.

Þetta er ekki öllum gefið en þetta er ástæðan fyrir því að ég legg líf mitt og minnar heimasíðu óhikað í hendur Ríkharðs Brynjólfssonar og Miðnets.

Miðnet – þegar annað dugir ekki til.

Ég lenti í óvæntu áfalli með tölvuna mína og gat ekki leyst málið sjálfur, staddur í Malaví í Afríku. Sá auglýsingu um ,,fjarhjálp" hjá Miðneti og sendi þeim tölvupóst. Innan nokkurra mínútna var svarað og með því að lýsa vandamálinu örstutt kom tillaga strax til baka sem leiddi til þess að tölvan fór í gang aftur þegar ég fylgdi leiðbeiningunum. Ég hélt að tölvan væri ónýt að eilífu en það var aldeilis ekki, sérfræðingarnir gátu hjálpað. Úrvalsþjónusta sem bjargaði miklu fyrir mig.
Stefán Jón Hafstein

Stefán Jón Hafstein

Starfsmaður Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Namibíu

Vefur: www.stefanjon.is
Miðnet hefur þjónustað Stálsmiðjuna Málmey í langan tíma. Bæði hafa þeir séð um tölvukerfið og vefsíðuna. Okkur finnst gott að geta kallað til einn aðila sem getur leyst öll þau mál sem upp koma. Við hjá Málmey erum ánægð með þjónustuna og getum því hiklaust mælt með Miðnet sem þjónustuaðila varðandi allt sem viðkemur tölvumálum fyrirtækja.malmeylogo
Gylfi Þór Guðlaugsson

Gylfi Þór Guðlaugsson

Framkvæmdastjóri

Vefur: www.malmey.is
Vinafélag Grænlands og Íslands, KALAK leitaði að góðum samstarfsaðila við að koma vef félagsins af stað aftur eftir nokkurt hlé.
Rikki er maðurinn og Miðnet er fyrirtækið. Það þarf ekki að leita annað.kalak-umsogn
Friðrik Ásmundsson Brekkan

Friðrik Ásmundsson Brekkan

Formaður KALAK, Vinafélags Grænlands og Íslands

Vefur: www.kalak.is
Við, sem höldum utan um vefinn interno.is fengum ábendinguinterno.jpg um, að Miðnet gæti verið rétti aðilinn til að gera hugmynd að heimasíðu á smekklegan hátt, á stuttum tíma og síðast en ekki síst, fyrir skynsamlega fjárhæð.

Við mæltum okkur mót, áttum saman stundar samtal og eftir nokkra daga var komin beinagrind að heimasíðu.

Á stuttum tíma tókst starfsfólki Miðnets að búa til myndræna heild um okkar hugmyndir þar sem við gátum lagt inn tilheyrandi texta með upplýsingum um þjónustu starfsfólks okkar og fjárfestingavörur hjá interno.is

Við fengum góða þjónustu fyrir mjög sanngjarnt verð. Svona líður okkur og þökkum fyrir viðskiptin. Þannig vonum við einnig að þeim líði sem nota heimasíðuna til að eiga viðskipti við interno.is

interno.is mælir með Miðneti – þar eru starfsmenn sem kunna til verka.
Edvard Sverrisson

Edvard Sverrisson

Eigandi Interno

Miðnet hjálpaði Blóm og Garðar ehf að hanna, útsetja og smíða heimasíðu blomoggardar.isblomoggardar.is

Miðnet býður góða þjónustu á viðráðanlegu verði. Auk þess setja Trond og hans menn allan sinn kraft í að þróa vefsíðuna með manni þangað til að við urðum sáttir með síðuna án þess að rukka eitthvað sérstaklega fyrir það. Við hjá Blóm og garðar ehf sérhönnum okkur að einfaldleika í lóðum, við kjósum einfaldleika eins og sést á heimasíðu okkar. Miðnet hefur lagt sitt að mörkum til að gera hlutina enn einfaldari fyrir okkur með gerð á þessari nýju heimasíðu okkar. Blóm og Garðar mæla eindregið með Miðnet og Trond Eiksund fyrir alla þá sem vilja opna stærsta auglýsingapláss í heimi á viðráðanlegu verði.

Blóm og Garðar ehf þakkar Trond fyrir einstaka fagmensku, þjónustlund, innsýni, ráðgjöf og einnig fyrir snör handtök.