Tölvuþjónusta

Öll tölvukerfi, stór sem smá, þarfnast góðs viðhalds. Það sem skiptir þitt fyrirtæki mestu máli er hversu hagstæð og vönduð sú viðhaldsþjónusta er. Miðnet býður þínu fyrirtæki alhliða tölvuþjónustu sem einkennist af persónulegri og vandaðri vinnu á góðum kjörum.

Við höfum sérhæft okkur í þjónustu fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki og hagstæðum lausnum fyrir þau.

 

Það sem við bjóðum:

  • Alhliða viðhald á netkerfi og tölvubúnaði    
  • Alsjálfvirka netafritun. Gögn eru dulkóðuð og afrituð sjálfvirkt yfir netið og geymd í öruggri gagnageymslu með  448bita dulkóðun.
  • Hýsing vefsíðna. Allir vefir eru hýstir í kældu rými á traustum vefþjónum sem tengdir eru 100MB ljósleiðara og varaafl ásamt daglegri öryggisafritun.
  • Vefsíðugerð. Smíðum vefi og vefkerfi fyrir allar gerðir fyrirtækja, stór sem smá.

Viðskiptavinir okkar eru fyrirtæki sem ekki eru með eigin tölvudeild en vilja eiga þess kost að geta kallað til aðila sem þekkir þeirra eigið kerfi, kemur fljótt á staðinn og leysir vandamálin. Sjá ummæli viðskiptavina hér

Meira í þessum flokki: Vefsíðugerð »