Það er auðvelt að blekkja sjálfan sig og lifa í þeirri trú að eigið fyrirtæki veiti svo góða þjónustu að viðskiptavinir þess séu allir hæstánægðir og eigi aldrei eftir að snúa sér annað.
En það er einföld staðreynd að öll fyrirtæki tapa viðskiptavinum þó svo að þau haldi að svo sé ekki. Viðskiptavinir sem taka þá ákvörðun að versla við annað fyrirtæki láta sjaldnast eða aldrei vita af áformum sínum, þeir einfaldlega hringja ekki í þig aftur.
Það er óneitanlega einfaldasta leiðin fyrir viðskiptavininn að láta ekkert í sér heyra heldur snúa sér til næsta þjónustuaðila. Tilgangurinn með þessum hluta vefsins er að gera þér eins auðvelt fyrir og hægt er að koma þínum kvörtunum á framfæri við okkur. Við viljum hvetja þig eindregið til að hafa samband ef þér finnst einhver hluti þjónustunnar ekki nægilega góður svo hægt sé að bæta þar um betur.
Einnig væri gaman að heyra frá ánægðum viðskiptavinum. Það hjálpar ekki síður en kvartanir og hvetur okkur jafnframt til að veita enn betri þjónustu.
Með fyrirfram þakklæti fyrir að hafa samband og þar með stuðla að bættri þjónustu fyrirtækisins.
Með virðingu,
Ríkharður Brynjólfsson
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.