Google Apps er frábær lausn fyrir fyrirtæki. Í sinni einföldustu mynd er varan póstkerfi en hefur ótrúlega marga eiginleika sem gerir lífið auðveldara í daglegum rekstri fyrirtækja. Líklega ætti að kalla þetta hópvinnukerfi.
Ef þú þú hefur áhuga á að hagræða í rekstri fyrirtækisins, þ.e.a.s. lækka kostnað, auka ánægju starfsfólks, eða yfirhöfuð einfalda póstkerfi fyrirtækisins þá ættir þú að kynna þér Google Apps.
Það er ekki að ástæðulausu sem 1.000.000 fyrirtækja hefur flutt sitt póstkerfi yfir í Google Apps og 3.000 bætast við á degi hverjum. Nokkur dæmi um þekkt fyrirtæki og háskóla sem nota Google Apps:
General Electric (300.000 starfsmenn)
Proctor & Gamble (138.000 starfsmenn)
Prudential
Loreal
National Geographic
Háskólar:
Northwestern (14.000 nemendur)
Arizona State (65.000 nemendur)
Trinity háskóli á Írlandi (15.000 nemendur)
Á þessari upptalningu hér að ofan eru eingöngu stór fyrirtæki og stofnanir, en það skal tekið skýrt fram að Google Apps gagnast 1-5 manna fyrirtækjum frábærlega líka.
Hér fyrir neðan er að finna myndbönd sem sýna viðtöl við eigendur og tæknistjóra fyrirtækja sem hafa ákveðið að hætta með Microsoft Exchange og Outlook og flytja yfir í Google Apps.